Kafla 88

Ljóð. Kóraíta-sálmur. Til söngstjórans. Syngist með Makalat-lagi. Hemans-maskíl Esraíta. (88:2)

Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga, um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.
2 (88:3) Lát bæn mína koma fyrir þig, hneig eyra að hrópi mínu,
3 (88:4) því að sál mín er mett orðin af böli, og líf mitt nálægist Hel.
4 (88:5) Ég er talinn með þeim, sem gengnir eru til grafar, ég er sem magnþrota maður.
5 (88:6) Mér er fenginn bústaður með framliðnum, eins og vegnum mönnum, er liggja í gröfinni, er þú minnist eigi framar, því að þeir eru hrifnir burt úr hendi þinni.
6 (88:7) Þú hefir lagt mig í gryfju undirheima, í myrkrið niðri í djúpinu.
7 (88:8) Reiði þín hvílir á mér, og alla boða þína hefir þú látið skella á mér. [Sela]
8 (88:9) Þú hefir fjarlægt frá mér kunningja mína, gjört mig að andstyggð í augum þeirra. Ég er byrgður inni og kemst ekki út,
9 (88:10) augu mín eru döpruð af eymd. Ég ákalla þig, Drottinn, dag hvern, breiði út hendurnar í móti þér.
10 (88:11) Gjörir þú furðuverk vegna framliðinna, eða munu hinir dauðu rísa upp til þess að lofa þig? [Sela]
11 (88:12) Er sagt frá miskunn þinni í gröfinni, frá trúfesti þinni í undirdjúpunum?
12 (88:13) Eru furðuverk þín kunngjörð í myrkrinu eða réttlæti þitt í landi gleymskunnar?
13 (88:14) En ég hrópa til þín, Drottinn, og á morgnana kemur bæn mín fyrir þig.
14 (88:15) Hví útskúfar þú, Drottinn, sálu minni, hylur auglit þitt fyrir mér?
15 (88:16) Ég er hrjáður og aðþrengdur frá æsku, ég ber skelfingar þínar og er ráðþrota.
16 (88:17) Reiðiblossar þínir ganga yfir mig, ógnir þínar eyða mér.
17 (88:18) Þær umkringja mig eins og vötn allan liðlangan daginn, lykja um mig allar saman.
18 (88:19) Þú hefir fjarlægt frá mér ástvini og félaga og gjört myrkrið að kunningja mínum.