Kafla 68

Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð. (68:2)

Guð rís upp, óvinir hans tvístrast, þeir sem hata hann flýja fyrir augliti hans.
2 (68:3) Eins og reykur eyðist, eyðast þeir, eins og vax bráðnar í eldi, tortímast óguðlegir fyrir augliti Guðs.
3 (68:4) En réttlátir gleðjast, fagna fyrir augliti Guðs og kætast stórum.
4 (68:5) Syngið fyrir Guði, vegsamið nafn hans, leggið braut fyrir hann er ekur gegnum öræfin. Drottinn heitir hann, fagnið fyrir augliti hans.
5 (68:6) Hann er faðir föðurlausra, vörður ekknanna, Guð í sínum heilaga bústað.
6 (68:7) Guð lætur hina einmana hverfa heim aftur, hann leiðir hina fjötruðu út til hamingju, en uppreisnarseggir skulu búa í hrjóstrugu landi.
7 (68:8) Ó Guð, þegar þú fórst út á undan lýð þínum, þegar þú brunaðir fram um öræfin, [Sela]
8 (68:9) þá nötraði jörðin, og himnarnir drupu fyrir Guði, Drottni frá Sínaí, fyrir Guði, Ísraels Guði.
9 (68:10) Ríkulegu regni dreyptir þú, ó Guð, á arfleifð þína, það sem vanmegnaðist, styrktir þú.
10 (68:11) Staðinn þar sem söfnuður þinn dvelur, bjóst þú hinum hrjáðu, ó Guð, sakir gæsku þinnar.
11 (68:12) Drottinn lætur orð sín rætast, konurnar sem sigur boða eru mikill her:
12 (68:13) "Konungar hersveitanna flýja, þeir flýja, en hún sem heima situr skiptir herfangi.
13 (68:14) Hvort viljið þér liggja milli fjárgirðinganna? Vængir dúfunnar eru lagðir silfri og fjaðrir hennar íbleiku gulli."
14 (68:15) Þegar Hinn almáttki tvístraði konungunum, þá snjóaði á Salmon.
15 (68:16) Guðs fjall er Basansfjall, tindafjall er Basansfjall.
16 (68:17) Hví lítið þér, tindafjöll, öfundarauga það fjall er Guð hefir kjörið sér til bústaðar, þar sem Drottinn samt mun búa um eilífð?
17 (68:18) Hervagnar Guðs eru tíþúsundir, þúsundir á þúsundir ofan. Hinn alvaldi kom frá Sínaí til helgidómsins.
18 (68:19) Þú steigst upp til hæða, hafðir á burt bandingja, tókst við gjöfum frá mönnum, jafnvel uppreisnarmönnum, að þú, Drottinn, Guð, mættir búa þar.
19 (68:20) Lofaður sé Drottinn, er ber oss dag eftir dag, Guð er hjálpráð vort. [Sela]
20 (68:21) Guð er oss hjálpræðisguð, og Drottinn alvaldur bjargar frá dauðanum.
21 (68:22) Já, Guð sundurmolar höfuð óvina sinna, hvirfil þeirra, er ganga í sekt sinni.
22 (68:23) Drottinn hefir sagt: "Ég vil sækja þá til Basan, flytja þá frá djúpi hafsins,
23 (68:24) að þú megir troða þá til bana, að tungur hunda þinna megi fá sinn hlut af óvinunum."
24 (68:25) Menn horfa á inngöngu þína, ó Guð, inngöngu Guðs míns og konungs í musterið.
25 (68:26) Söngvarar eru í fararbroddi, þá strengleikarar, ásamt yngismeyjum, er berja bumbur.
26 (68:27) Lofið Guð á hátíðarsamkundum, lofið Drottin, þér sem eruð af uppsprettu Ísraels.
27 (68:28) Þar er Benjamín litli, er ríkir yfir þeim, höfðingjar Júda í þyrpingu, höfðingjar Sebúlons, höfðingjar Naftalí.
28 (68:29) Bjóð út, ó Guð, styrkleik þínum, þeim styrkleik sem þú hefir auðsýnt oss
29 (68:30) frá musteri þínu í Jerúsalem. Konungar skulu færa þér gjafir.
30 (68:31) Ógna þú dýrinu í sefinu, uxaflokkunum ásamt bolakálfum þjóðanna, sem troða menn fótum sökum ágirndar sinnar á silfri. Tvístra þú þjóðum, er unna ófriði!
31 (68:32) Það koma sendiherrar frá Egyptalandi, Bláland færir Guði gjafir hröðum höndum.
32 (68:33) Þér konungsríki jarðar, syngið Guði, syngið Drottni lof, [Sela]
33 (68:34) honum sem ekur um himnanna himna frá eilífð, hann lætur raust sína gjalla, hina voldugu raust.
34 (68:35) Tjáið Guði dýrð, yfir Ísrael er hátign hans og máttur hans í skýjunum.
35 (68:36) Ógurlegur er Guð í helgidómi sínum, Ísraels Guð veitir lýðnum mátt og megin. Lofaður sé Guð!