Kafla 60

Til söngstjórans. Lag: Vitnisburðarliljan. Miktam eftir Davíð, til fræðslu, (60:2) þá er hann barðist við Sýrlendinga frá Mesópotamíu og Sýrlendinga frá Sóba, og Jóab sneri við og vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, tólf þúsund manns. (60:3)

Guð, þú hefir útskúfað oss og tvístrað oss, þú reiddist oss - snú þér aftur að oss.
2 (60:4) Þú lést jörðina gnötra og rofna, gjör við sprungur hennar, því að hún reikar.
3 (60:5) Þú lést lýð þinn kenna á hörðu, lést oss drekka vímuvín.
4 (60:6) Þú hefir gefið þeim, er óttast þig, hermerki, að þeir mættu flýja undan bogunum. [Sela]
5 (60:7) Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr oss, til þess að ástvinir þínir megi frelsast.
6 (60:8) Guð hefir sagt í helgidómi sínum: "Ég vil fagna, ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót-dal.
7 (60:9) Ég á Gíleað og ég á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.
8 (60:10) Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég."
9 (60:11) Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm?
10 (60:12) Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.
11 (60:13) Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt.
12 (60:14) Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum.