Kafla 65

Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð. (65:2)

Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon, og við þig séu heitin efnd.
2 (65:3) Þú sem heyrir bænir, til þín kemur allt hold.
3 (65:4) Margvíslegar misgjörðir urðu mér yfirsterkari, en þú fyrirgafst afbrot vor.
4 (65:5) Sæll er sá er þú útvelur og lætur nálægjast þig til þess að búa í forgörðum þínum, að vér megum seðjast af gæðum húss þíns, helgidómi musteris þíns.
5 (65:6) Með óttalegum verkum svarar þú oss í réttlæti, þú Guð hjálpræðis vors, þú athvarf allra jarðarinnar endimarka og fjarlægra stranda,
6 (65:7) þú sem festir fjöllin með krafti þínum, gyrtur styrkleika,
7 (65:8) þú sem stöðvar brimgný hafsins, brimgnýinn í bylgjum þess og háreystina í þjóðunum,
8 (65:9) svo að þeir er búa við endimörk jarðar óttast tákn þín, austrið og vestrið lætur þú fagna.
9 (65:10) Þú hefir vitjað landsins og vökvað það, blessað það ríkulega með læk Guðs, fullum af vatni, þú hefir framleitt korn þess, því að þannig hefir þú gjört það úr garði.
10 (65:11) Þú hefir vökvað plógför þess, jafnað plóggarða þess, með regnskúrum hefir þú mýkt það, blessað gróður þess.
11 (65:12) Þú hefir krýnt árið með gæsku þinni, og vagnspor þín drjúpa af feiti.
12 (65:13) Það drýpur af heiðalöndunum, og hæðirnar girðast fögnuði.
13 (65:14) Hagarnir klæðast hjörðum, og dalirnir hyljast korni. Allt fagnar og syngur.