Kafla 108

Ljóð. Davíðssálmur. (108:2)

Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, ég vil syngja og leika, vakna þú, sála mín!
2 (108:3) Vakna þú, harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.
3 (108:4) Ég vil lofa þig meðal lýðanna, Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,
4 (108:5) því að miskunn þín er himnum hærri, og trúfesti þín nær til skýjanna.
5 (108:6) Sýn þig himnum hærri, ó Guð, og dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina,
6 (108:7) til þess að ástvinir þínir megi frelsast. Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig.
7 (108:8) Guð hefir sagt í helgidómi sínum: "Ég vil fagna, ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót-dal.
8 (108:9) Ég á Gíleað, ég á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.
9 (108:10) Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég."
10 (108:11) Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm?
11 (108:12) Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.
12 (108:13) Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt.
13 (108:14) Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum.