Kafla 5

Til söngstjórans. Með hljóðpípu. Davíðssálmur. (5:2)

Heyr orð mín, Drottinn, gef gaum að andvörpum mínum.
2 (5:3) Hlýð þú á kveinstafi mína, konungur minn og Guð minn, því að til þín bið ég.
3 (5:4) Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína, á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig, og ég bíð þín.
4 (5:5) Þú ert eigi sá Guð, er óguðlegt athæfi líki, hinir vondu fá eigi að dveljast hjá þér.
5 (5:6) Hinir hrokafullu fá eigi staðist fyrir þér, þú hatar alla er illt gjöra.
6 (5:7) Þú tortímir þeim, sem lygar mæla, á blóðvörgum og svikurum hefir Drottinn andstyggð.
7 (5:8) En ég fæ að ganga í hús þitt fyrir mikla miskunn þína, fæ að falla fram fyrir þínu heilaga musteri í ótta frammi fyrir þér.
8 (5:9) Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu sakir óvina minna, gjör sléttan veg þinn fyrir mér.
9 (5:10) Einlægni er ekki til í munni þeirra, hjarta þeirra er glötunardjúp. Kok þeirra er opin gröf, með tungu sinni hræsna þeir.
10 (5:11) Dæm þá seka, Guð, falli þeir sakir ráðagjörða sinna, hrind þeim burt sakir hinna mörgu afbrota þeirra, því að þeir storka þér.
11 (5:12) Allir kætast, er treysta þér, þeir fagna að eilífu, því að þú verndar þá. Þeir sem elska nafn þitt gleðjast yfir þér.
12 (5:13) Því að þú, Drottinn, blessar hinn réttláta, hlífir honum með náð þinni eins og með skildi.