Kafla 41

Til söngstjórans. Davíðssálmur. (41:2)

Sæll er sá er gefur gaum að bágstöddum, á mæðudeginum bjargar Drottinn honum.
2 (41:3) Drottinn varðveitir hann og lætur hann njóta lífs og sælu í landinu. Og eigi ofurselur þú hann græðgi óvina hans.
3 (41:4) Drottinn styður hann á sóttarsænginni, þegar hann er sjúkur, breytir þú beð hans í hvílurúm.
4 (41:5) Ég sagði: "Ver mér náðugur, Drottinn, lækna sál mína, því að ég hefi syndgað móti þér."
5 (41:6) Óvinir mínir biðja mér óbæna: "Hvenær skyldi hann deyja og nafn hans hverfa?"
6 (41:7) Og ef einhver kemur til þess að vitja mín, talar hann tál. Hjarta hans safnar að sér illsku, hann fer út og lætur dæluna ganga.
7 (41:8) Allir hatursmenn mínir hvískra um mig, þeir hyggja á illt mér til handa:
8 (41:9) "Hann er altekinn helsótt, hann er lagstur og rís eigi upp framar."
9 (41:10) Jafnvel sá er ég lifði í sátt við, sá er ég treysti, sá er etið hefir af mat mínum, lyftir hæl sínum í móti mér.
10 (41:11) En þú, Drottinn, ver mér náðugur og lát mig aftur rísa á fætur, að ég megi endurgjalda þeim.
11 (41:12) Af því veit ég, að þú hefir þóknun á mér, að óvinur minn hlakkar ekki yfir mér.
12 (41:13) Vegna sakleysis míns hélst þú mér uppi og lætur mig standa frammi fyrir augliti þínu að eilífu.
13 (41:14) Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen.