Kafla 48

Ljóð. Kóraítasálmur. (48:2)

Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli.
2 (48:3) Yndisleg rís hún, gleði alls landsins, Síonarhæð, yst í norðri, borg hins mikla konungs.
3 (48:4) Guð hefir í höllum hennar kunngjört sig sem vígi.
4 (48:5) Því sjá, konungarnir áttu með sér stefnu, héldu fram saman.
5 (48:6) Óðara en þeir sáu, urðu þeir agndofa, skelfdust, flýðu.
6 (48:7) Felmtur greip þá samstundis, angist sem jóðsjúka konu.
7 (48:8) Með austanvindinum brýtur þú Tarsis-knörru.
8 (48:9) Eins og vér höfum heyrt, svo höfum vér séð í borg Drottins hersveitanna, í borg vors Guðs. Guð lætur hana standa að eilífu. [Sela]
9 (48:10) Guð, vér ígrundum elsku þína inni í musteri þínu.
10 (48:11) Eins og nafn þitt, Guð, svo hljómi lofgjörð þín til endimarka jarðar. Hægri hönd þín er full réttlætis.
11 (48:12) Síonfjall gleðst, Júdadætur fagna vegna dóma þinna.
12 (48:13) Kringið um Síon, gangið umhverfis hana, teljið turna hennar.
13 (48:14) Hyggið að múrgirðing hennar, skoðið hallir hennar, til þess að þér getið sagt komandi kynslóð,
14 (48:15) að slíkur sé Drottinn, Guð vor. Um aldur og ævi mun hann leiða oss.