Kafla 49

Fyrir kvenraddir. Til söngstjórans. Kóraítasálmur. (49:2)

Heyrið þetta, allar þjóðir, hlustið á, allir heimsbúar,
2 (49:3) bæði lágir og háir, jafnt ríkir sem fátækir!
3 (49:4) Munnur minn talar speki, og ígrundun hjarta míns er hyggindi.
4 (49:5) Ég hneigi eyra mitt að spakmæli, ræð gátu mína við gígjuhljóm.
5 (49:6) Hví skyldi ég óttast á mæðudögunum, þá er hinir lævísu óvinir mínir umkringja mig með illsku,
6 (49:7) þeir sem reiða sig á auðæfi sín og stæra sig af sínu mikla ríkidæmi.
7 (49:8) Enginn maður fær keypt bróður sinn lausan né greitt Guði lausnargjald fyrir hann.
8 (49:9) Lausnargjaldið fyrir líf þeirra mundi verða of hátt, svo að hann yrði að hætta við það að fullu,
9 (49:10) ætti hann að halda áfram að lifa ævinlega og líta ekki í gröfina.
10 (49:11) Nei, hann sér, að vitrir menn deyja, að fífl og fáráðlingar farast hver með öðrum og láta öðrum eftir auðæfi sín.
11 (49:12) Grafir verða heimkynni þeirra að eilífu, bústaðir þeirra frá kyni til kyns, jafnvel þótt þeir hafi kennt lendur við nafn sitt.
12 (49:13) Maðurinn í allri sinni vegsemd stenst ekki, hann verður jafn skepnunum sem farast.
13 (49:14) Svo fer þeim sem eru þóttafullir, og þeim sem fylgja þeim og hafa þóknun á tali þeirra. [Sela]
14 (49:15) Þeir stíga niður til Heljar eins og sauðahjörð, dauðinn heldur þeim á beit, og hinir hreinskilnu drottna yfir þeim, þá er morgnar, og mynd þeirra eyðist, Hel verður bústaður þeirra.
15 (49:16) En mína sál mun Guð endurleysa, því að hann mun hrífa mig úr greipum Heljar. [Sela]
16 (49:17) Óttast þú ekki, þegar einhver verður ríkur, þegar dýrð húss hans verður mikil,
17 (49:18) því að hann tekur ekkert af því með sér, þegar hann deyr, auður hans fer ekki niður þangað á eftir honum.
18 (49:19) Hann telur sig sælan meðan hann lifir: "Menn lofa þig, af því að þér farnast vel."
19 (49:20) - Hann verður þó að fara til kynslóðar feðra sinna, sem aldrei að eilífu sjá ljósið.
20 (49:21) Maðurinn í vegsemd, en hyggindalaus, verður jafn skepnunum sem farast.