Kafla 21

Til söngstjórans. Davíðssálmur. (21:2)

Drottinn, yfir veldi þínu fagnar konungurinn, hve mjög kætist hann yfir hjálp þinni!
2 (21:3) Þú hefir gefið honum það er hjarta hans þráði, um það sem varir hans báðu, neitaðir þú honum eigi. [Sela]
3 (21:4) Því að þú kemur í móti honum með hamingjublessunum, setur gullna kórónu á höfuð honum.
4 (21:5) Um líf bað hann þig, það veittir þú honum, fjöld lífdaga um aldur og ævi.
5 (21:6) Mikil er sæmd hans fyrir þína hjálp, vegsemd og heiður veittir þú honum.
6 (21:7) Já, þú hefir veitt honum blessun að eilífu, þú gleður hann með fögnuði fyrir augliti þínu.
7 (21:8) Því að konungurinn treystir Drottni, og vegna elsku Hins hæsta bifast hann eigi.
8 (21:9) Hönd þín nær til allra óvina þinna, hægri hönd þín nær til allra hatursmanna þinna.
9 (21:10) Þú gjörir þá sem glóandi ofn, er þú lítur á þá. Drottinn tortímir þeim í reiði sinni, og eldurinn eyðir þeim.
10 (21:11) Ávöxtu þeirra afmáir þú af jörðunni og afkvæmi þeirra úr mannheimi,
11 (21:12) því að þeir hafa stofnað ill ráð í gegn þér, búið fánýtar vélar.
12 (21:13) Því að þú rekur þá á flótta, miðar á andlit þeirra með boga þínum.
13 (21:14) Hef þig, Drottinn, í veldi þínu! Vér viljum syngja og kveða um máttarverk þín!