Kafla 46

Til söngstjórans. Eftir Kóraíta. Fyrir kvenraddir. Ljóð. (46:2)

Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.
2 (46:3) Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins.
3 (46:4) Látum vötnin gnýja og freyða, látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hafsins. [Sela]
4 (46:5) Elfar-kvíslir gleðja Guðs borg, heilagan bústað Hins hæsta.
5 (46:6) Guð býr í henni, eigi mun hún bifast, Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi.
6 (46:7) Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu, raust hans þrumaði, jörðin nötraði.
7 (46:8) Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela]
8 (46:9) Komið, skoðið dáðir Drottins, hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu.
9 (46:10) Hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar, brýtur bogann, slær af oddinn, brennir skjöldu í eldi.
10 (46:11) "Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð, hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu."
11 (46:12) Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela]