Kafla 4

Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur. (4:2)

Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti, rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
2 (4:3) Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
3 (4:4) Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð, að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
4 (4:5) Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
5 (4:6) Færið réttar fórnir og treystið Drottni.
6 (4:7) Margir segja: "Hver lætur oss hamingju líta?" Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
7 (4:8) Þú hefir veitt hjarta mínu meiri gleði en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
8 (4:9) Í friði leggst ég til hvíldar og sofna, því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.