Síðari kroníkubók

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36


Kafla 27

Jótam var tuttugu og fimm ára gamall, þá er hann varð konungur, og sextán ár ríkti hann í Jerúsalem. Móðir hans hét Jerúsa Sadóksdóttir.
2 Hann gjörði það, sem rétt var í augum Drottins, með öllu svo sem gjört hafði Ússía faðir hans. Þó fór hann eigi inn í musteri Drottins. En lýðurinn aðhafðist enn óhæfu.
3 Hann reisti efra hliðið á musteri Drottins, og af Ófelmúr byggði hann mikið.
4 Þá reisti hann og borgir í Júdafjöllum, og í skógunum reisti hann hallir og turna.
5 Hann átti og í ófriði við konunga Ammóníta og vann sigur á þeim. Guldu Ammónítar honum það ár hundrað talentur silfurs, tíu þúsund kór hveitis og tíu þúsund kór byggs. Færðu Ammónítar honum þetta einnig annað og þriðja árið.
6 Varð Jótam þannig æ voldugri, því að hann gekk veg sinn fyrir augliti Drottins, Guðs síns.
7 Það sem meira er að segja um Jótam og um alla bardaga hans og fyrirtæki, það er ritað í bók Ísraels- og Júdakonunga.
8 Hann var tuttugu og fimm ára gamall, þá er hann varð konungur, og sextán ár ríkti hann í Jerúsalem.
9 Og Jótam lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum, og var grafinn í Davíðsborg. Og Akas sonur hans tók ríki eftir hann.