Jósúabók

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24


Kafla 12

Þessir eru konungar landsins, þeir er Ísraelsmenn unnu sigur á og tóku lönd af hinumegin Jórdanar, austanmegin, frá Arnoná til Hermonfjalls og allt sléttlendið austanmegin:
2 Síhon, Amorítakonungur, sem bjó í Hesbon og réð landi frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og dalnum miðjum og hálfu Gíleað að Jabboká, sem er á landamærum Ammóníta,
3 og sléttlendinu að Genesaretvatni að austanverðu og að vatninu á sléttlendinu, Saltasjó, að austanverðu, suður undir Bet Jesímót, og til suðurs að Pisgahlíðum.
4 Sömuleiðis land Ógs, konungs í Basan, sem var einn þeirra Refaíta, er eftir voru, og bjó í Astarót og Edreí
5 og réð yfir Hermonfjöllum, Salka og öllu Basan, að landamærum Gesúra og Maakatíta, og yfir hálfu Gíleað, að landamærum Síhons, konungs í Hesbon.
6 Móse, þjónn Drottins, og Ísraelsmenn höfðu unnið sigur á þeim, og Móse, þjónn Drottins, hafði gefið Rúbenítum, Gaðítum og hálfri ættkvísl Manasse landið til eignar.
7 Þessir eru konungar landsins, þeir er Jósúa og Ísraelsmenn unnu sigur á fyrir vestan Jórdan, frá Baal Gað í Líbanonsdal til Skallabergs, sem liggur upp til Seír, - en landið gaf Jósúa ættkvíslum Ísraels til eignar eftir skiptingu þeirra -,
8 í fjalllendinu, á láglendinu, á sléttlendinu, í fjallahlíðunum, í eyðimörkinni og í suðurlandinu, - land Hetíta, Amoríta, Kanaaníta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta:
9 Konungurinn í Jeríkó einn, konungurinn í Aí, sem er hjá Betel, einn,
10 konungurinn í Jerúsalem einn, konungurinn í Hebron einn,
11 konungurinn í Jarmút einn, konungurinn í Lakís einn,
12 konungurinn í Eglon einn, konungurinn í Geser einn,
13 konungurinn í Debír einn, konungurinn í Geder einn,
14 konungurinn í Horma einn, konungurinn í Arad einn,
15 konungurinn í Líbna einn, konungurinn í Adúllam einn,
16 konungurinn í Makeda einn, konungurinn í Betel einn,
17 konungurinn í Tappúa einn, konungurinn í Hefer einn,
18 konungurinn í Afek einn, konungurinn í Saron einn,
19 konungurinn í Madón einn, konungurinn í Hasór einn,
20 konungurinn í Simrón Meróm einn, konungurinn í Aksaf einn,
21 konungurinn í Taanak einn, konungurinn í Megíddó einn,
22 konungurinn í Kedes einn, konungurinn í Jokneam hjá Karmel einn,
23 konungurinn í Dór í Dórshæðum einn, konungur heiðingjanna í Gilgal einn,
24 konungurinn í Tirsa einn, - alls þrjátíu og einn konungur.