Haggaí

1 2


Kafla 2

Á tuttugasta og fyrsta degi hins sjöunda mánaðar talaði Drottinn fyrir munn Haggaí spámanns á þessa leið:
2 Mæl þú til Serúbabels Sealtíelssonar, landstjóra í Júda, og til Jósúa Jósadakssonar æðsta prests og til þeirra sem eftir eru af lýðnum, á þessa leið:
3 Hver er sá af yður eftir orðinn, er séð hefir þetta hús í sinni fyrri vegsemd, og hversu virðist yður það nú? Er það ekki einskisvert í yðar augum?
4 En ver samt hughraustur, Serúbabel - segir Drottinn - og ver hughraustur, Jósúa Jósadaksson æðsti prestur, og ver hughraustur, allur landslýður - segir Drottinn - og haldið áfram verkinu, því að ég er með yður - segir Drottinn allsherjar -
5 samkvæmt heiti því, er ég gjörði við yður, þá er þér fóruð af Egyptalandi, og andi minn dvelur meðal yðar. Óttist ekki.
6 Því að svo segir Drottinn allsherjar: Eftir skamma hríð mun ég hræra himin og jörð, haf og þurrlendi.
7 Ég mun hræra allar þjóðir, svo að gersemar allra þjóða skulu hingað koma, og ég mun fylla hús þetta dýrð - segir Drottinn allsherjar.
8 Mitt er silfrið, mitt er gullið - segir Drottinn allsherjar.
9 Hin síðari dýrð þessa musteris mun meiri verða en hin fyrri var - segir Drottinn allsherjar - og ég mun veita heill á þessum stað - segir Drottinn allsherjar.
10 Á tuttugasta og fjórða degi hins níunda mánaðar, á öðru ríkisári Daríusar, talaði Drottinn fyrir munn Haggaí spámanns á þessa leið:
11 Svo segir Drottinn allsherjar: Leitaðu fræðslu prestanna um þetta:
12 "Setjum, að maður beri heilagt kjöt í kyrtilskauti sínu og snerti síðan brauð, einhvern rétt matar, vín, olíu eða eitthvað annað matarkyns með kyrtilskauti sínu, verður það þá heilagt af því?" Prestarnir svöruðu og sögðu: "Nei!"
13 Þá spurði Haggaí: "Ef maður, sem orðinn er óhreinn, af því að hann hefir snortið lík, kemur við eitthvað af þessu, verður það þá óhreint?" Prestarnir svöruðu og sögðu: "Já, það verður óhreint."
14 Þá tók Haggaí til máls og sagði: "Eins er um þennan lýð og þessa þjóð í mínum augum - segir Drottinn - svo og um allt verk er þeir vinna, og það sem þeir færa mér þar að fórn, það er óhreint.
15 Og rennið nú huganum frá þessum degi aftur í tímann, áður en steinn var lagður á stein ofan í musteri Drottins.
16 Hvernig leið yður þá? Kæmi maður að kornbing, sem gjöra skyldi tuttugu skeppur, þá urðu þær tíu. Kæmi maður að vínþröng og ætlaði að ausa fimmtíu könnur úr þrónni, þá urðu þar ekki nema tuttugu.
17 Ég hefi refsað yður með korndrepi og gulnan og hagli yfir öll handaverk yðar, og þó snúið þér yður ekki til mín! - segir Drottinn.
18 Rennið nú huganum frá þessum degi lengra aftur í tímann, frá hinum tuttugasta og fjórða degi hins níunda mánaðar, frá þeim degi er lagður var grundvöllur að musteri Drottins. Rennið huganum yfir,
19 hvort enn sé korn í forðabúrinu og hvort víntrén og fíkjutrén og granateplatrén og olíutrén beri ekki enn ávöxt. Frá þessum degi vil ég blessun gefa!" Serúbabel, hinn útvaldi Guðs
20 Orð Drottins kom til Haggaí annað sinn hinn tuttugasta og fjórða sama mánaðar, svo hljóðandi:
21 Mæl til Serúbabels, landstjóra í Júda á þessa leið: Ég mun hræra himin og jörð.
22 Ég kollvarpa veldisstólum konungsríkjanna og eyðilegg vald hinna heiðnu konungsríkja. Ég kollvarpa vögnum og þeim, sem í þeim aka, og hestarnir skulu hníga dauðir og þeir, sem á þeim sitja, hver fyrir annars sverði.
23 Á þeim degi - segir Drottinn allsherjar - tek ég þig, Serúbabel Sealtíelsson, þjónn minn, og fer með þig eins og innsiglishring, því að þig hefi ég útvalið - segir Drottinn allsherjar.