Orðskviðirnir

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31


Kafla 24

Öfunda ekki vonda menn og lát þig ekki langa til að vera með þeim,
2 því að hjarta þeirra býr yfir ofríkisverkum, og varir þeirra mæla ógæfu.
3 Fyrir speki verður hús reist, og fyrir hyggni verður það staðfast,
4 fyrir þekking fyllast forðabúrin alls konar dýrum og yndislegum fjármunum.
5 Vitur maður er betri en sterkur og fróður maður betri en aflmikill,
6 því að holl ráð skalt þú hafa, er þú heyr stríð, og þar sem margir ráðgjafar eru, fer allt vel.
7 Viskan er afglapanum ofviða, í borgarhliðinu lýkur hann ekki upp munni sínum.
8 Þann sem leggur stund á að gjöra illt, kalla menn varmenni.
9 Syndin er fíflslegt fyrirtæki, og spottarinn er mönnum andstyggð.
10 Látir þú hugfallast á neyðarinnar degi, þá er máttur þinn lítill.
11 Frelsaðu þá, sem leiddir eru fram til lífláts, og þyrm þeim, sem ganga skjögrandi að höggstokknum.
12 Segir þú: "Vér vissum það eigi," - sá sem vegur hjörtun, hann verður sannarlega var við það, og sá sem vakir yfir sálu þinni, hann veit það og mun gjalda manninum eftir verkum hans.
13 Et þú hunang, son minn, því að það er gott, og hunangsseimur er gómi þínum sætur.
14 Nem á sama hátt speki fyrir sálu þína, finnir þú hana, er framtíð fyrir hendi, og von þín mun eigi að engu verða.
15 Sit eigi, þú hinn óguðlegi, um bústað hins réttláta og eyðilegg ekki heimkynni hans,
16 því að sjö sinnum fellur hinn réttláti og stendur aftur upp, en óguðlegir steypast í ógæfu.
17 Gleð þig eigi yfir falli óvinar þíns, og hjarta þitt fagni eigi yfir því að hann steypist,
18 svo að Drottinn sjái það ekki og honum mislíki, og hann snúi reiði sinni frá honum til þín.
19 Reiðst ekki vegna illgjörðamanna, öfunda eigi óguðlega,
20 því að vondur maður á enga framtíð fyrir höndum, á lampa óguðlegra slokknar.
21 Son minn, óttastu Drottin og konunginn, samlaga þig ekki óróaseggjum,
22 því að ógæfa þeirra ríður að þegar minnst varir, og ófarir beggja - hver veit um þær?
23 Þessir orðskviðir eru líka eftir spekinga. Hlutdrægni í dómi er ljót.
24 Þeim sem segir við hinn seka: "Þú hefir rétt fyrir þér!" honum formæla menn, honum bölvar fólk.
25 En þeim sem hegna eins og ber, mun vel vegna, yfir þá kemur ríkuleg blessun.
26 Sá kyssir á varirnar, sem veitir rétt svör.
27 Annastu verk þitt utan húss og ljúk því á akrinum, síðan getur þú byggt hús þitt.
28 Vertu eigi vottur gegn náunga þínum að ástæðulausu, eða mundir þú vilja svíkja með vörum þínum?
29 Seg þú ekki: "Eins og hann gjörði mér, eins ætla ég honum að gjöra, ég ætla að endurgjalda manninum eftir verkum hans!"
30 Mér varð gengið fram hjá akri letingja nokkurs og fram hjá víngarði óviturs manns.
31 Og sjá, hann var allur vaxinn klungrum, hann var alþakinn netlum, og steingarðurinn umhverfis hann var hruninn.
32 En ég varð þess var, veitti því athygli, sá það og lét mér það að kenningu verða:
33 Sofa ögn enn, blunda ögn enn, leggja saman hendurnar ögn enn til að hvílast,
34 þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi og skorturinn eins og vopnaður maður.