Fyrri Samúelsbók

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31


Kafla 29

Filistar drógu nú saman allan her sinn hjá Afek, en Ísrael setti herbúðir sínar við lindina hjá Jesreel.
2 Og höfðingjar Filista komu með hundruð sín og þúsundir, og Davíð og menn hans komu síðastir með Akís.
3 Þá sögðu höfðingjar Filista: "Hvað eiga þessir Hebrear hér að gjöra?" Akís sagði við höfðingja Filista: "Það er Davíð, hirðmaður Sáls konungs í Ísrael, sem nú hefir með mér verið í tvö ár, og hefi ég ekki haft neitt út á hann að setja frá þeirri stundu, er hann gjörðist minn maður, og allt fram á þennan dag."
4 Höfðingjar Filista reiddust honum og sögðu við hann: "Lát þú manninn hverfa heim aftur. Fari hann á sinn stað, þar sem þú hefir sett hann, en eigi skal hann með oss fara í bardagann, svo að hann snúist ekki á móti oss í orustunni. Með hverju gæti hann betur náð aftur hylli herra síns en með höfðum þessara manna?
5 Var það ekki þessi sami Davíð, sem sungið var um við dansinn: Sál felldi sín þúsund og Davíð sín tíu þúsund?"
6 Þá lét Akís kalla Davíð og sagði við hann: "Svo sannarlega sem Drottinn lifir ert þú ráðvandur, og ég uni því vel, að þú gangir út og inn með mér í herbúðunum, því að ég hefi ekki orðið neins ills var hjá þér frá þeirri stundu, er þú komst til mín, og allt fram á þennan dag, en höfðingjunum er ekki um þig.
7 Hverf því aftur og far í friði, svo að þú gjörir ekki neitt það, sem höfðingjum Filista mislíkar."
8 Þá sagði Davíð við Akís: "Hvað hefi ég þá gjört, og hvað hefir þú haft út á þjón þinn að setja, frá þeirri stundu, er ég gjörðist þinn maður, og allt fram á þennan dag, að ég skuli ekki mega fara og berjast við óvini herra míns, konungsins?"
9 Akís svaraði og sagði við Davíð: "Ég veit, að þú ert í mínum augum góður, sem værir þú engill Guðs, en höfðingjar Filista segja: ,Eigi skal hann með oss fara í bardagann.'
10 Rís þú því árla á morgun, ásamt mönnum herra þíns, sem með þér komu, og farið þér þangað sem ég hefi sett yður, og ætlaðu mér ekkert illt, því að vel er mér til þín, - og rísið þá árla á morgun og haldið af stað, þegar birtir."
11 Reis nú Davíð árla um morguninn og menn hans og lögðu af stað heim aftur til Filistalands, en Filistar fóru upp í Jesreel.