Dómarabókin

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21


Kafla 12

Efraímsmönnum var stefnt saman. Þeir héldu í norður og sögðu við Jefta: "Hví hefir þú farið að berjast við Ammóníta og eigi kvatt oss þér til fylgdar? Nú munum vér leggja eld í hús þitt yfir þér."
2 Þá sagði Jefta við þá: "Ég og þjóð mín áttum í miklum deilum við Ammóníta. Beiddist ég þá liðs hjá yður, en þér hjálpuðuð mér ekki úr höndum þeirra.
3 Og er ég sá, að þér ætluðuð ekki að hjálpa mér, þá lagði ég líf mitt í hættu og fór í móti Ammónítum, og Drottinn gaf þá í hendur mér. Hvers vegna komið þér þá í dag til mín til þess að berjast við mig?"
4 Og Jefta safnaði saman öllum mönnum í Gíleað og barðist við Efraímíta, og unnu Gíleaðsmenn sigur á Efraímítum, því að Efraímítar höfðu sagt: "Þér eruð flóttamenn frá Efraím! Gíleað liggur mitt í Efraím, mitt í Manasse."
5 Gíleaðítar settust um Jórdanvöðin yfir til Efraím. Og þegar flóttamaður úr Efraím sagði: "Leyf mér yfir um!" þá sögðu Gíleaðsmenn við hann: "Ert þú Efraímíti?" Ef hann svaraði: "Nei!"
6 þá sögðu þeir við hann: "Segðu ,Sjibbólet.'" Ef hann þá sagði: "Sibbólet," og gætti þess eigi að bera það rétt fram, þá gripu þeir hann og drápu hann við Jórdanvöðin. Féllu þá í það mund af Efraím fjörutíu og tvær þúsundir.
7 Jefta var dómari í Ísrael í sex ár. Síðan andaðist Jefta Gíleaðíti og var grafinn í einni af Gíleaðs borgum.
8 Eftir Jefta var Íbsan frá Betlehem dómari í Ísrael.
9 Hann átti þrjátíu sonu, og þrjátíu dætur gifti hann burt frá sér, og þrjátíu konur færði hann sonum sínum annars staðar að. Hann var dómari í Ísrael í sjö ár.
10 Síðan andaðist Íbsan og var grafinn í Betlehem.
11 Eftir hann var Elón Sebúloníti dómari í Ísrael. Hann var dómari í Ísrael í tíu ár.
12 Síðan andaðist Elón Sebúloníti og var grafinn í Ajalon í Sebúlon-landi.
13 Eftir hann var Abdón Híllelsson Píratóníti dómari í Ísrael.
14 Hann átti fjörutíu sonu og þrjátíu sonasonu, sem riðu sjötíu ösnufolum. Hann var dómari í Ísrael í átta ár.
15 Síðan andaðist Abdón Híllelsson Píratóníti og var grafinn í Píratón í Efraímlandi á Amalekítafjöllum.